Átaksbloggarar
![]()
Velkomin á heimasíðuna okkar!
Við erum hressar stelpur sem eigum það sameiginlegt að vilja léttast um nokkur kíló. Sumar um mörg, aðrar um færri. Enn sem komið er er enginn karlmaður í okkar hópi, en þeir eru velkomnir samt sem áður ;) Við höfum allar sett upp bloggsíður þar sem við fjöllum um átakið okkar. Við skrifum niður hvernig okkur gengur, hvernig okkur líður, hvað við borðum, hvort við hreyfum okkur eitthvað aukalega o.s.frv. Við teljum enga eina megrunarleið vera heppilegri en aðra. Við skiljum alveg og virðum að það er misjafnt hvað hentar hverjum og einum.
Við fáum ómetanlegan stuðning frá hvorri annarri, þar sem við tökum langflestar bloggrúnt, þ.e. skoðum bloggin hjá hvorri annarri, a.m.k. einu sinni á dag og kommentum á það sem hinir átaksbloggararnir hafa skrifað. Við peppum hvora aðra upp, styðjum, skömmum meira að segja smá af og til og hvetjum hvora aðra áfram. Okkur er farið að þykja ákaflega vænt um hvora aðra. Sumar okkar hafa hist, en aðalsamskipti okkar eru í gegnum tölvuna. Ef þér finnst eins og þetta sé eitthvað sem hentar þér þá er bara að smella upp bloggsíðu og slást í hópinn. Ef þú vilt fá komment á bloggið þitt þá er langbesta leiðin til þess að kommenta hjá hinum og láta vita af þér. Við erum flestar með linka á aðra átaksbloggara á bloggsíðunum okkar og skoðum þær síður reglulega.
Hér eru bloggin okkar Virkustu bloggin eru merkt með aðferðinni sem viðkomandi notar. Athugið þó að allir fara samt ekki eftir nákvæmlega sama prógrammi þó þeir fylgi svipaðri stefnu. Þetta er bara gróf flokkun til að gefa smá hugmynd ;)
Einstaklingar 75 kg - Kolvetnasnautt fæði
Einstaklingar Linda
Einstaklingar Átaksbollan
Hópar |