Átakið mitt

Ég hef nú aldrei verið grönn en yfirleitt samt verið bara nokkuð sátt við mig. En þegar ég gekk með barn númer tvö þyngdist ég rosalega á meðgöngunni. Ég hafði alltaf verið svona í kringum 80 kg, en eftir að ég átti Örnu Valdísi var ég komin yfir 100 kg, sem mér fannst alveg hræðilegt. Smátt og smátt hélt ég áfram að fitna, léttist reyndar smá eftir að ég eignaðist Hjalta Sævar, yngsta barnið mitt, en um sumarið 2002 var ég orðin næstum 117 kg.

Í árslok það ár var ég alveg búin að fá nóg af þessu og ákvað að gera eitthvað róttækt í málunum. Ég breytti því öllu mataræðinu hjá mér, fór að borða kolvetnasnautt fæði, og einnig þá var ég dugleg að labba hvert sem ég þurfti að fara. Þetta hafði svo sannarlega sín áhrif því á 4 mánuðum léttist ég um ca 20 kg. Frá því í maí og þar til í nóvember 2003 fóru um 10 kg í viðbót þannig að á tæpu ári léttist ég í heildina um 30 kg. Fyrir jólin 2003 þá sýndi vigtin í kringum 87 kg. Ég var reyndar búin að vera föst þar í margar vikur, en hey... það er nú bara afrek út af fyrir sig að halda þyngdinni ;) En svo laumuðust nú einhver kíló aftur á mig um jólin og áramótin, en ég náði þeim loks af mér aftur, eftir reyndar margra vikna baráttu. Stundum erfitt að ná sér á strik aftur.

Það var rosalega erfitt að brjóta 87 kg múrinn og ég sá að ég þyrfti eitthvað að breyta til. Ég fór því að skrifa niður allt sem ég borðaði, vigtaði og reiknaði út kaloríur og kolvetni. Það virkaði mjög vel fyrir mig og ég setti mér takmark að komast í 80 kg fyrir sumarfríið mitt, sem byrjaði í lok júlí 2004. Þessum árangri náði ég, en bætti svo á mig um 5-6 kg í sumarfríinu heima á Íslandi. Það er svo dæmigert að maður slakar á svona í fríum og um hátíðar. En þegar ég kom aftur til Noregs tók ég mig strax á og þessi sukk-kíló fóru nú fljótt aftur. Í byrjun nóvember 2004 var ég komin í 77 kg og í fyrsta skipti á ævinni upplifði ég að kjörþyngd var í sjónmáli. Þá fór ég að slaka aðeins á í kolvetnatakmörkuninni og bæta inn góðum kolvetnum smátt og smátt. Jólin 2004 bættu á mig 5 kg, eins og venjulega :/ en ég náði þeim einnig fljótt af aftur og þann 23. janúar 2005 náði ég þeim merka áfanga að vera komin í kjörþyngd, þ.e. 72 kg. Miðað við BMI stuðul eru það efri mörk kjörþyngdar fyrir mig, en ég er 170 cm á hæð. Áfram hélt ég að léttast í rólegheitum og náði að komast í 67,8 kg, en nú var ég búin að setja takmarkið á 66-67 kg.
![]()
Páskarnir 2005 bættu á mig nokkrum kílóum og fljótlega eftir þá stóð ég í flutningum. Svona rútínuleysi fer alltaf illa með mataræðið mitt, þannig að enn og aftur bætti ég á mig nokkrum kílóum. Þannig að núna þegar þetta er skrifað, 5. maí 2005, er þyngdin í kringum 73-74 kg. En þessu næ ég fljótt af mér aftur, er alveg viss um það, og stefnan er enn og aftur tekin á ca 66,5 kg ;)
![]()
En allavegana þá er þetta hægt. Þegar ég var sem þyngst þá óx mér alveg rosalega í augum bara að komast niður fyrir þriggja stafa töluna, en rosalega var ég ánægð með mig þegar því markmiði var náð. Það er ekki hægt að lýsa hvað þetta gerir mikið fyrir sjálfstraustið, tala nú ekki um hvað mér líður betur líkamlega. Það fyrsta sem ég tók eftir var að verkirnir í hnjánum og bakinu hurfu og ég hætti að blása eins og fýsibelgur við minnstu áreynslu. Haustið 2003 byrjaði ég í ræktinni og fór svona 2-3 sinnum í viku til að byrja með, tókst það svo sem ekki alltaf, en reyndi ;) En svo eftir sumarið 2004 fór ég að auka hreyfinguna og núna fer ég oftast um 5-6 sinnum í viku í ræktina og er eiginlega bara orðin háð því að fara.

Hér fyrir neðan getið þið séð nokkrar myndir af mér og hvernig ég hef breyst... eða ég ætla rétt að vona að þið sjáið muninn :D

Febrúar 2001

maí 2002

júlí 2002

desember 2002

mars 2003

maí 2003

júní 2003

nóvember 2003

desember 2003

júlí/ágúst 2004

október 2004

nóvember 2004

febrúar 2005

mars 2005