BRAUÐ
|
Gróft brauð Uppskriftin gefur 2 brauð, ca 26 gr kolvetni í 100 g af tilbúnu brauði 1/2 dl heil bygggrjón 1. Leggið bygggrjónin í bleyti í helmingnum af vatninu yfir nótt. Grófmalið grjónin síðan ásamt bleytivatninu í matvinnsluvél. 2. Hitið afganginn af vatninu í ca 37°C og myljið gerið út í og hrærið saman. Bætið út í olíu, melassa og bygggrjónablöndunni. 3. Blandið saman þurrefnunum og bætið út í. Hnoðið vel. Rúgmjölsdeig þarf að vera nokkuð þétt því það verður linara þegar það fer að hefast.Bætið við rúgmjöli ef þörf þykir. 4. Setjið plast yfir skálina og látiðhefast í tvöfalda stærð (ca 1 1/2 - 2 klukkutímar). 5. Hnoðið deigið aftur og formið síðan tvö brauð og setjið í smurð brauðform. Látið hefast aftur í 30 mínútur. 6. Stingið göt á brauðin með gaffli. Bakið neðst í ofni við 200°C í ca 45 mínútur.
|