DRYKKIR

 

Vatnslosandi engiferdjús à la Olla

2 l vatn
c.a. 8 cm engiferrót
1 sítróna

Uppskriftin dugar í ca 20 glös, ~0 g kolvetni í hverju glasi

1. Engiferrótin er afhýdd og skorin niður í þunnar sneiðar, sett í pott ásamt 2 l af vatni.

2. Sítrónubörkurinn rifinn ofan í og allt látið sjóða á lágum hita í u.þ.b klukkutíma. Potturinn þá tekin af hitanum og látinn standa yfir nótt.

3. Eftir þetta er safinn kreistur úr sítrónunni út í seyðið og það síðan sigtað. Geymið seyðið í kæli, t.d. í 2ja lítra gosflösku.

4. Djúsið er svo blandað u.þ.b. 50/50 með vatni, einfaldast að gera það í hvert glas fyrir sig.

 

Aftur á aðalréttayfirlit

Aftur á uppskriftayfirlit