FISKUR OG SJÁVARFANG
|
Glóðuð lúða með rækjusósu Uppskriftin er fyrir 6, ca 2,5 g kolvetni í hverjum skammti 900 g smálúðuflök
eða rauðsprettuflök 1. Leggið hreinsuð flökin á smurðan álpappír eða í smurt ofnfast fat. penslið með olíu og sáldrið pipar yfir. Látið bíða á meðan sósan er gerð. 2. Hitið rjómann og grænmetiskraftinn að suðu. Bræðið smurostinn í rjómanum. 3. Sáldrið salti yfir fiskinn og setjið undir glóð í miðjan ofn og glóðið þar til hann hefur fengið fallegan lit og er gegnsteiktur í u.þ.b. 5-7 mínútur. 4. Setjið rækjurnar út í sósuna rétt áður en hún er borin fram og skreytið með steinselju.
Grillaður skötuselur með beikoni Uppskriftin er fyrir 4, 0 g kolvetni í hverjum skammti 800 g skötuselur 1. Skerið skötuselinn í ca 1 cm þykkar sneiðar. 2. Vefjið beikonsneið utan um hvert stykki og festið með tannstöngli. 3. Grillið á grilli eða í ofni. 4. Gott að bera fram með bökuðum kartöfluhýðum og fersku grænmeti. |