KJÚKLINGUR OG ANNAÐ FUGLAKJÖT

 

Kjúklingur Cordon Bleu

Uppskriftin er fyrir 6, >1 g kolvetni í hverjum skammti

6 kjúklingabringur
6 sneiðar skinka
8 ostsneiðar
1/2 bolli rjómi
smjör

1. Hitið ofninn í 180°C. Berjið kjúklingabringurnar þar til þær eru orðnar tiltölulega þunnar.

2. Steikið bringurnar í smjöri þar til þær eru vel brúnaðar báðu megin.

3. Setjið bringurnar í eldfast mót og setjið skinku- og ostsneið ofan á hverja bringu.

4. Hellið rjómanum á pönnuna og bræðið afganginn af ostinum þar í.

5. Hellið sósunni yfir bringurnar og bakið í ofni í 30 mínútur.

 

Aftur á aðalréttayfirlit

Aftur á uppskriftayfirlit