| Morgunmatur
½ greipaldinn
eða 1 glas ósætur greipsafi
2 egg (steikt eða soðin)
2 sneiðar beikon
Hádegismatur
½ greipaldinn
eða 1 glas ósætur greipsafi
ferskt grænt salat/ salat dressing (eigið val)
Kjöt- ótakmarkað (eigið val)
Kvöldmatur
½ greipaldinn
eða 1 glas ósætur safi
Kjöt- ótakmarkað (eigið val)
Grænmeti (veljið af lista fyrir neðan)
Kvöldkaffi
1 glas tómatsafi
eða undanrenna
Aðferð
1. Í hverja máltíð
eigið þið að borða þar til þið eruð
södd. Borðið þar til þið getið ekki meira
í ykkur látið. Það má borða meira
en 2 sneiðar af beikoni í morgunmat ;) Athugið að með
kjöti er átt við allar gerðir kjöts, einnig fuglakjöt,
fisk, rækjur og annar skelfiskur, ásamt eggjum. Hann má
vera matreiddur á hvaða hátt sem er. Passið ykkur
bara á að unnar matvörur geta innihaldið töluvert
af kolvetnum.
2. Helst ekki sleppa neinu af listanum.
3. Sleppið kaffi því það hefur áhrif
á insúlínið í líkamanum sem kemur
í veg fyrir brenslu. Reynið allavega að drekka ekki meira
en 1 bolla á dag.
4. Borðið ekki á milli mála. Ef þið borðið
eins mikið og þið getið í hverja máltíð
ættuð þið ekki að verða svöng.
5. Borðið alls ekki sætindi, brauð, hvítt grænmeti,
sætar kartöflur, eða ávexti.
6. Ekki borða hvítann lauk, kartöflur, gular baunir eða
seljurót.
7. Þið megið borða rauðann lauk, paprikur, radísur,
agúrkur, brokkoli, grænan lauk, kál, gulrætur,
og tómata.
8. Allt gos þarf að vera sykurlaust og helst koffínlaust.
9. Drekkið allavega 8 glös af vatni á dag
10. Svo auðvitað hjálpar það að hreyfa sig
;)
Haldið ykkur við planið í 12 daga og takið svo
frí í 2. Þið munið kannski ekki léttast
neitt fyrstu 4 dagana en þar á eftir ættuð þið
að missa ½ til 1 kíló á 2ja daga fresti
þar til þið hafið misst eins mikið og þið
viljið. Flestir missa 5 kíló á 10 dögum.
Ef þið byrjið á kúrnum á mánudegi
þá passar að aðra hvora helgi má taka sér
pásu og borða það sem maður vill (en passið
samt að detta ekki alveg í það). Fyrstu dagarnir
eru erfiðastir en svo minnkar svengdartilfinningin mjög fljótt
(ein af áhrifum þessa fæðis) og þetta verður
leikur einn.
Smá tips
· Ostar eru leyfðir,
flestir innihalda ekkert kolvetni. Ágætir sem snakk þegar
snakklöngunin er að drepa mann.
· Salthnetur má borða í hófi.
· Sykurlaust skyr er í lagi.
· Trefjaríkt hrökkbrauð er allt í lagi af
og til. Fiber+ er t.d. mjög gott.
· Ef þú ert að deyja úr sætindalöngun
þá er skárra að fá sér dökkt
súkkulaði en ljóst. Það dökka inniheldur
meira kakó og þ.a.l. minna af kolvetnum. Ágætt
á fríhelgum. Svo er líka sums staðar til kolvetnissnautt
súkkulaði.
· Í stað kartaflna, hrísgrjóna eða
pasta sem meðlætis er gott að smjör- eða olíusteikja
grænmeti og krydda það að vild.
· Sósur má búa til úr rjóma
og soðinu af kjötinu/fisknum.
|