MEÐLÆTI

 

Fylltir sveppir

Uppskriftin er fyrir 4, ca 2 g kolvetni í hverjum skammti

8 stórir heilir sveppir
1/3-1/2 stk. gráðostur
2-3 hvítlauksrif

1. Takið fótinn af sveppunum.

2. Setjið gráðostinn í skál, saxið hvítlaukinn og blandað saman við.

3. Fyllið sveppina með ostablöndunni.

4. Bakið í ofni við ca 180-200°C þar til osturinn er orðinn heitur í gegn.

 

Kartöfluhýði

Uppskriftin er fyrir 4, 2 g kolvetni í hverju hýði

3 stórar bökunarkartöflur
3 msk. smjör
salt og pipar
ostsneiðar eða rifinn parmesan ostur

1. Hitið ofninn í 200°C. Þvoið kartöflurnar og skrúbbið vel. Stingið í þær á nokkrum stöðum svo þær springi ekki.

2. Setjið kartöflurnar beint á ofngrind og bakið í eina klukkustund, eða þar til hýðið er orðið stökkt. Takið út úr ofninum og látið kólna í smá stund.

3. Bræðið smjörið.

4. Skerið kartöflurnar í helminga eftir endilöngu og takið mesta maukið innan úr þeim með skeið.

5. Látið hýðin á bökunarpappír og berið brætt smjör á þau með pensli. Saltið og piprið vel. Látið eina ostsneið á hvert hýði eða stráið parmesan osti yfir.

6. Kryddið e.t.v. með paprikudufti eða hvítlauksdufti.

7. Bakið í ofni í 10-15 mínútur, eða þar til osturinn er bráðnaður og hýðin orðin stökk.

 

Brokkolígratín

Uppskriftin er fyrir 4, 2,6 g kolvetni í hverjum skammti

200 g brokkolí
2 egg
2,5 dl rjómi
salt og pipar

rifinn ostur

1. Skerið brokkolíið í bita.

2. Sjóðið brokkolíið í rjómanum í 5 mínútur. Þeytið eggin á meðan.

3. Hellið rjómanum í skál og blandið eggjahrærunni saman við.

4. Kryddið með salti og pipar. Setjið brokkolíiðí eldfast mót og hellið rjóma/eggjahrærunni yfir. Dreifið ostinum ofan á.

5. Bakið í ofni við ca 200°C í u.þ.b. 15 mín.

 

Aftur á uppskriftayfirlit