NAUTAKJÖT
|
Ungversk gúllassúpa (án kartaflna) Uppskriftin er fyrir 6, ca 10 g kolvetni í hverjum skammti 8-900
gr nautagúllas 1. Saxið lauka og pressið hvítlauksrif. Steikið kjötið í olíunni í potti ásamt lauk og hvítlauk. 2. Stráið paprikuduftinu yfir kjötið og bætið vatni út í pottinn ásamt kjötkrafti, kúmeni og meirani. Látið sjóða við vægan hita í 40 mínútur. 3. Skerið gulrætur, papriku og tómata í litla bita. 4. Bætið gulrótum og paprikum út í pottinn og látið sjóða við vægan hita í 30 mínútur. 5. Kryddið ef með þarf.
Nautakjöt í rjómasósu Uppskriftin er fyrir fjóra, 4 g af kolvetni í hverjum skammti 2 msk.
matarolía 1. Hitið olíuna á pönnnu. Skerið lundina í fallega bita og brúnið í olíunni. Kryddið með salti og pipar. Takið kjötið af pönnunni og geymið. 2. Skerið sveppi í grófar sneiðar og beikon í bita. Bætið smjöri út á pönnuna og steikið beikonð og sveppina á háum hita í u.þ.b. fimm mínútur. 3. Bætið kjötinu út í og hellið rjómanum og ostinum yfir. Hrærið vel í og látið malla í 5-10 mínútur, eða þar til sósan hefur þykknað. 4. Kryddið ef með þarf. 5. Gott er að bera fram gamaldags hvítkálssalat í majónesi með réttinum.
Paprikur með kjötfyllingu Uppskriftin er fyrir fjóra, ca 15 g kolvetni í hverjum skammti 400 gr
nautahakk 1. Brúnið kjötið í olíunni 2. Saxið laukinn, pressið hvítlaukinn, skerið sveppina og léttsteikið með kjötinu í þrjár mínútur. 3. Fínsaxið chilipiparinn oig blandið saman við kjötið ásamt kryddi, tómatmauki og vatni. Látið sjðoða við vægan hita í fimm mínútur. Hrærið í af og til. 4. Hlemingið paprikurnar, fjarlægið fræin og sjóðið við mjög vægan hita í léttsöltuðu vatni í þrjár mínútur. 5. Bragðbætið
sósuna ef með þarf og fyllið síðan paprikuhelmingana.
Ítölsk kjötsúpa Fyrir 6 um 10 gr af kolvetnum í skammti. 500.
gr nautakjöt Krydd; 1. Skerið nautakjötið niður, kryddið með svörtum pipar og steikið. 2. Skerið allt grænmetið niður og steikið það þar til að það er mjúkt 3. Setjið restina í pottinn, fyrir utan sýrða rjómann, og látið malla. Því lengur því betra. Setjið slettu af sýrða rjómanum út á hvern disk áður en borið er fram. 4. Berið fram með fersku salati. Mjög vel gestahæft og börn elska þessa súpu ! |