SMÁRÉTTIR

 

Osta- og skinkubaka

Uppskriftin er fyrir 6, 1 g kolvetni í hverjum skammti

1 bolli majónes
4 egg
2/3 bolli rjómi
salt og pipar
1/2 bolli skinka í teningum
1/2 bolli blaðlaukur í sneiðum
2 bollar rifinn ostur
paprikuduft

1. Hitið ofninn í 200°C

2. Þeytið saman egg, majónes og rjóma.

3. Bætið skinku og lauk saman við og kryddið með salti og pipar.

4. Setjið ostinn út í og blandið vel.

5. Hellið í vel smurt eldfast mót og bakið í u.þ.b. 40 mínútur, eða þar til bakan er orðin stíf.

6. Berið fram með t.d. beikoni sem morgunverð, eða fersku salati sem hádegisverð.

 

Soyapönnukökur/crêpes à la Gerrit

Uppskriftin gefur ca 2 þykkar pönnukökur, 7 g kolvetni í hverri pönnuköku ef notaður er 1 dl nýmjólk, 4,5 g kolvetni ef eingöngu er notað vatn

25 gr sojahveiti
1 egg
1/4 tsk matarsódi
1 tsk áfengislausir vanillu- eða kökudropar (fást í heilsuhúsinu)

E.t.v. smá matarolía
Ca 2 dl mjólk og/eða vatn

1. Blandið öllum hráefnunum saman.

2. Steikt eins og venjulegar pönnukökur á sitt hvorri hliðinni.

3. Til að hafa þetta sem smárétt er hægt er að fylla pönnukökuna með t.d. rækjum, beikoni eða skinku, með AB-mjólkursósu og grænmeti. Kíkið undir eftirrétti til að fá hugmyndir að sætri pönnuköku.

 

Aftur á uppskriftayfirlit