SVÍNAKJÖT

 

Svínastrimlar með grænmeti

Uppskriftin er fyrir 4-6, ca 5-7,5 g kolvetni í hverjum skammti

800 grömm svínasnitzel eða -gúllas
1 gul paprika
200 g sveppir
1 stór gulrót
200 g brokkolí
1 rauðlaukur
hvítlaukskrydd
salt og pipar eða grillkrydd
2 msk. smjörlíki eða olía til steikingar

1. Skerið svínakjötið í strimla. Hitið 1msk. smjörlíki/olíu á pönnu.

2. Brúnið svínastrimlana á pönnunni, kryddið með salt og pipar eða grillkryddi.

3. Skerið grænmetið og sveppina, saxið laukinn á meðan svínakjötið er að brúnast.

4. Takið svínakjötið af pönnunni og geymið. Bætið við 1 msk. smjörlíki/olíu á pönnuna og brúnið.

5. Léttsteikið grænmetið og kryddið með hvítlaukskryddi.

6. Blandið annaðhvort kjötinu saman við grænmetið, eða berið fram í sitt hvoru lagi.

 

Aftur á aðalréttayfirlit

Aftur á uppskriftayfirlit