ÝMIS RÁÐ OG HUGMYNDIR

 

Í staðin fyrir ritzkex má nota þykkar gúrkusneiðar og hafa svo einhverja girnilega osta ofan á.

Bakað kartöfluhýði er kolvetnasnautt og gott. Bakið stórar bökunarkartöflur í ofni í ca klukkutíma. Takið þær svo út og skerið til helminga eftir endilöngu. Takið mesta maukið úr með skeið. Penslið hýðin með bráðnu smjöri og setjið t.d. ost og krydd ofan í, og bakið áfram í ofni í ca 15 mínútur, eða þar til osturinn er bráðnaður.

Í stað ostasamloku í örbylgjuofni má raða til skiptis ostsneiðum og skinku á disk og bræða þetta í örbylgjuofninum.

Fylltir sveppir, bakaðir í ofni, eru líka svaka góðir. Veljið stóra sveppi, takið fótinn af þeim og fyllið með einhverju gumsi sem ykkur finnst gott. T.d. er hægt að blanda saman gráðosti og hvítlauk (jafnvel setja beikonbita ofan á), rjómaostur með graslauk og kryddi eftir smekk, camembert og krydd eftir smekk, piparostur o.s.frv. - bara nota hugmyndaflugið. Bakað í ofni þar til ostablandan er orðin vel heit.

Tómata, skorna í helminga, má líka fylla á svipaðan hátt. Svo má líka bara skera þá í helminga og setja ostsneiðar ofan á, eða þá desertostbita, krydda eftir smekk og baka í ofni.