ÝMISLEGT

 

Grænmetissúpa

Uppskriftin er fyrir 6, ca 7g kolvetni í hverjum skammti

1 rauðlaukur
2 gulrætur
1/4 blaðlaukur
3-5 hvítlauksrif
1/3 rauð paprika
1/3 græn paprika
3 beikonsneiðar
2 msk. ólífuolía
1 L kröftugt og bragðmikið grænmetis- eða kjúklingasoð (hægt að gera með vatni og súputeningum)
4-5 tómatar eða 1 dós niðursoðnir
1 msk. tómatmauk
2 tsk. ítölsk kryddjurtablanda
1 brokkolíhöfuð
salt og pipar

1. Saxið rauðlaukinn og hvítlaukinn, skerið grænmetið í bita, sneiðar eða strimla.

2. Léttsteikið rauðlaukinn, gulræturnar, blaðlaukinn, hvítlaukinn og beikonið upp úr olíunni.

3. Hellið soðinu yfir og látið sjóða. Bætið út í tómötum og tómatmauki.

4. bragðbætið með kryddjurtablöndunni. Setjið brokkolíbitana út í að lokum.

5. Saltið og piprið eftir smekk.

 

Aftur á aðalréttayfirlit

Aftur á uppskriftayfirlit